Stutt heimsókn til New York

 

Gunnar og Anna eru búin að vera í stuttri heimsókn. Nú þegar þau eru farin felldum við tár bæði ég og New York. New York er aðeins stórtækari en ég þó ég geri ráð fyrir að minn söknuður sé mun meiri en hennar. En hún tárfellir nú af miklum krafti með þrumum og eldingum eftir eindæma veðurblíðu. Krakkarnir nutu verunnar alveg í botn. Þau sjoppuðu og sjopppuðu, fóru á söngleik, sigldu meðfram eyjunni, upplifðu Times Square, Central Park og Lower Manhattan og borðuðu góðan mat og góðan mat. Það var yndislegt að fá þau og upplifa með þeim tilfinninguna sem borgin gefur.
Nú eru það bara bækurnar og verkefnin sem eiga hug min allan þangað til næsta holl heiðrar mig með nærveru sinni. En það eru Anna og Geiri sem stoppa í nokkra daga næstu helgi.
Það er gaman að sjá að þið eruð að kíkja í heimsókn á bloggsíðuna mína, enn meira gaman að fá athugasemdir. Læt þetta nægja í bili.

í lestinni

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já , alltaf gaman að lesa bloggið. Við  erum orðin mjög spennt að koma. Við verðum að njóta hverrar mínútu því þetta verður svo stutt. Vonandi verður borgin búin að jafna sig og hætt að gráta.

Sjáumst

Kveðja Anna

Anna Hrönn Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:17

2 identicon

Sæl,

 Fékkstu ekki athugasmdina sem ég sendi þér 08.10? Skrifaði kannski of mikið

En gaman að fylgjast með og allra bestu kveðjur til ykkar hjóna frá okkur hér á hjara veraldar Patreksfirði

 Svanhvít og Ragnar

Svanhvít Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 12:51

3 identicon

Sæl Svanhvít og Ragnar

Athugasemdin hefur dottið út, en ég sá að þú hafðir kíkt inn. Bestu kveðjur, L

lilja Johannsdottir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 14:03

4 identicon

Takk enn og aftur fyrir helgina. Þetta var frábært. Sakna þín og borgarinnar strax. Borgin saknaði okkar svo mikið að henni tókst að tefja okkur aðeins á leiðinni heim. Þrumuveðrið setti allt í stopp á JFK en við komumst samt heim á endanum. Koss og knús.

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 08:25

5 identicon

Halló,halló,

Vorum að koma úr Reykjavíkinni, stoppuðum í 2 nætur vegna margvíslegra erinda.  Gistum í Pension Grjótó við alveg 5 stjörnu viðurgjörning.  Förum aftur á laugardag á Hótel Hávalla og verðum í rúma viku í foreldrafjarveru.  Gaman að lesa bloggið frá þér.  Hafðu það sem best

Mamma og pabbi

Edda Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 10:50

6 identicon

Hæ Lilja

Frábært að fá að fylgjast með hve gott og gaman er hjá ykkur. Sakna þín úr Grandaskóla !! Haltu áfram að njóta tilverunnar og leyfa okkur hinum að fá innsýn í stórborgarlífið.

kv. Inga

inga sigurðardóttir (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 09:04

7 identicon

Sæl Lilja.

Það er frábært að fá að fylgjast með þér og því sem þú ert að bralla.

Svo er bara spurning hvenær við komum til þín eins og við töluðum um á Solon.

Kær keðja

Svana

SvanaJakobsdóttir (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 18:19

8 identicon

Sæl verið þið öll og takk fyrir innlitið

Já gestirnir lífga mikið uppá tilveruna hérna. Ég hlakka mikið til að fá allar þær heimsóknir sem von er á. Ég fer ekki mikið að "væna og dæna" þegar ég er ein. Þá breytist ég í nörd sem er alltaf einn heima eða á bókasafninu. Annars er ég búin að finna skóla gymmið sem er innifalið í skólagjöldunum og er farin að stunda það reglulega.

bestu kveðjur, L

lilja Johannsdottir (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 22:38

9 identicon

Halló Halló vinkona.  Mínar bestu óskir um skemmtilegan dag í dag,gott að Anna er hjá þér  ..Er Jói heima núna ?  Knús  og klemma úr Mýrinni

ausa (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 09:33

10 identicon

Takk enn og aftur fyrir æðislega ferð! Frábært að vera með "innfædda" með sér þegar maður er í útlöndum. Hafðu það gott, kv. Anna :)

Anna (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lilja Jóhannsdóttir

Höfundur

Lilja Jóhannsdóttir
Lilja Jóhannsdóttir
Lilja dvelur í New York á haustönn 2007

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jólagjafakaup L1030505
  • Jól í Macys L1030519
  • Fallega skreytt jólatré
  • Villi, Lilja og Eric L1030529
  • The spotted pig - bestu borgararnir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 359

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband