23.10.2007 | 17:47
Er flutt
Þessi vika hefur liðið hratt, einsemdin ekki sem verst, sem betur fer koma margir í heimsókn á meðan ég er hér. Því að ég geri ekki neitt merkilegt svona ein. Um helgina fór ég í window shoppig og fékk mér lunch í Columbus Circle. Þaðan er fallegt útsýni yfir Cetral Park.
Nú þarf ég að kanna Williamsburg og vera undirbúin þegar næsta heimsókn brestur á. En það eru Jóhann, Gylfi og Hrafnhildur sem koma á fimm



Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.10.2007 | 16:17
Anna og Ásgeir í heimsókn
Við fórum á show sem var að byrja hér en það heitir Fuerza Bruta. Þetta er loftfimleikasýning sem reynir á öll skilningarvit áhorfandans

Nú eru þau farin á vit enn frekari ævintýra á St Croix en ég ætla að njóta eins og ég get síðustu vikunnar hér í þorpinu, um leið og ég læri og undirbý flutning yfir í Brooklyn.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2007 | 02:12
Stutt heimsókn til New York
Gunnar og Anna eru búin að vera í stuttri heimsókn. Nú þegar þau eru farin felldum við tár bæði ég og New York. New York er aðeins stórtækari en ég þó ég geri ráð fyrir að minn söknuður sé mun meiri en hennar. En hún tárfellir nú af miklum krafti með þrumum og eldingum eftir eindæma veðurblíðu. Krakkarnir nutu verunnar alveg í botn. Þau sjoppuðu og sjopppuðu, fóru á söngleik, sigldu meðfram eyjunni, upplifðu Times Square, Central Park og Lower Manhattan og borðuðu góðan mat og góðan mat. Það var yndislegt að fá þau og upplifa með þeim tilfinninguna sem borgin gefur.
Nú eru það bara bækurnar og verkefnin sem eiga hug min allan þangað til næsta holl heiðrar mig með nærveru sinni. En það eru Anna og Geiri sem stoppa í nokkra daga næstu helgi.
Það er gaman að sjá að þið eruð að kíkja í heimsókn á bloggsíðuna mína, enn meira gaman að fá athugasemdir. Læt þetta nægja í bili.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 02:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.10.2007 | 14:31
Magnaður fyrirlestur í skólanum mínum.
Erin Gruwell er kennari frá Los Angeles. Áður en hún fór í kennarnám ætlaði hún í lögfræði. En í kjölfar Rodney King málsins og kynþátta óeirðanna 1992 í Los Angeles varð henni ljóst að í réttarsalnum væru skjólstæðingar hennar þegar búnir að tapa baráttunni. Ef hún ætlaði grípa inní yrði það að gerast fyrr, sem sagt í skólanum.
Erin þessi hélt fyrirlestur hjá okkur í NYU um daginn og sagði frá upplifun sinni af kennarastarfinu eða öllu frekar hugsjónastarfinu. Fyrstu nemendurnir hennar voru 14 ára krakkar af öllum kynþáttum (einn hvítur) sem enginn hafði trú á. Þau voru meðlimir í hinum ýmsu gengjum, nokkur höfðu verið í fangelsi, mörg á fósturheimilum, mörg höfðu horft uppá einhvern nákominn skotinn. Enginn gerði ráð fyrir því að þau lykju námi. Hún benti þeim á hvað árásir gengjanna í skólanum minntu á nasisma og holocaust. Þau höfðu ekki heyrt minnst á holocaust áður. Hún sýndi þeim myndina Schindlers List og upp úr því voru þau tilbúin til að hlusta á boðskap hennar. Bækurnar sem hún bað deildarstjórann um, varð hún að kaupa sjálf. Krökkunum væri ekki treystandi fyrir bókunum, og þau gætu hvort sem ekkert lært! Hún lét þau m.a. lesa Dagbók Önnu Frank, Zlata's Diary: A Childs´s Life in Sarajevo, Elie Wiesel´s Night og Kviður Homers. Verkefnin sem hún lagði fyrir þau voru þannig að krakkarnir fundu eitthvað í lestrinum sem tengdi við þeirra eigin reynslu. Hún lét þau fá stílabækur sem þau áttu að skrifa dagbókarfærslur í á hverjum degi. Þau fengu ekki einkunn fyrir skrifin og enginn las dagbækurnar nema þau óskuðu eftir því sjálf. Erin tókst á undraverðan hátt að nálgast þessa krakka með því að breyta útaf námskrá og að nálgast krakkana útfrá þeirra forsendum. Hún kenndi þeim í fjögur ár og eftir það fór hún að kenna kennurum og stússast í hreyfingunni sem hún og nemendu hennar stofnuðu *The freedom Writers" sem hefur það að markmiði að kenna umburðarlyndi. Þau hafa einnig gefið út bók; *The freedom Writers Diary". Á fyrirlestrinum hjá okkur sagði Erin frá hvernig hún þessi hvíta, draktar og perlufestarkona tókst á við kerfið og tókst að hjálpa þessum krökkum að algerlega snúa við blaðinu. Einnig komu tveir nemendur hennar á fyrirlesturinn og sögðu frá hvernig líf þeirra tók stakkaskiptum, með breyttri hugsun og nýrri framtíðarsýn.
Þetta var algerlega magnað, þær töluðu allar blaðalaust og af mikilli innlifun. Ég man ekki eftir fyrirlestri þar sem ég og allir í kringum mig grenjuðum svona mikið. Kvikmynd hefur verið gerð um þessa sögu. Hún heitir Freedom Writers og leikur Hilary Swank aðalhlutverkið. Þetta er mjög góð mynd og kannaðist maður við flest sem Erin og stelpurnar sögðu frá á fyrirlestrinum.
Ferðalög | Breytt 6.10.2007 kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Lilja Jóhannsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar