21.12.2007 | 00:52
Síðasta bloggið


Skólinn var búinn í fyrstu vikunni í desember og gengu bæði námskeiðin mjög vel. Ég held jafnvel að ég hafi líka náð námskeiðinu sem ég tók í KHÍ í fjarnámi. Sem sagt 12 einingar í höfn og náin kynni við stórkostlega heimsborg eru afraksturinn af fyrri hluta námsleyfisins.
Lokaspretturinn í New York var tekinn á rólegu nótunum. Til stóð að sjá jafnvel einn söngleik í viðbót eða eina danssýningu. En tíminn flaug frá okkur og Gospell brunch í Harlem og kvöldverður á Il Buco verða einnig að bíða þar til við komum næst.
En við náðum að kaupa slatta af jólagjöfum og einhverjar spjarir utan á okkur. Jólainnkaupin hrukku fyrst í almennilegan gír þegar Lilja áttaði sig á að það var miklu minni troðningur og engar biðraðir í dýru búðunum á fimmtu breiðgötu. Við fórum á nokkur veitingahús sem við vorum búin að fá tips um s.s. The Spotted Pig sem er veitingarstaður í vestur þorpinu þar sem himneskir hamborgarar eru í boði og verðið eftir því, Peter Luger steikhús í Williamsburg, þar sem steikurnar eru víst þær bestu í New York, fengið bestu einkunn s.l. 23 ár. Nú síðast var farið á Jules Jazz veitingarhús í austur þorpinu þar sem er lifandi tónlist öll kvöld. Þar spilaði Lipbone Redding á varinar á sér. Hann tjáði okkur áhuga sinn á Íslandsferð og gerðumst við umboðsmenn hans á staðnum. Einnig könnuðum við Williamsburg aðeins nánar og kíktum á stað við Grand street sem heitir Rose. Við vorum reyndar einu gestirnir þar þegar við litum inn undir miðnætti á mánudagskvöld, og 5 manna blues grúppa tók okkur fagnandi og spilaði fyrir okkur skötuhjúin af krafti meðan við ýmist löptum rauðvín eða dönsuðum virkilega rómantískur endir á barrannsóknum okkar í NY. Við vorum líka menningarleg og skoðuðum splunkunýtt safn á Bowery, The New Museum sem var áhugavert eins og nýlist gerist hvað best. Villi, Siffufrændi sem bjargaði okkur í húsnæðismálunum hér í haust bauð okkur í jólaboð þar sem við fengum frábærar veitingar sem hefðu sómt sér vel í íslenskri fermingarveislu og við hittum skemmtilegt fólk, mest úr tískubransanum en einnig verðbréfamiðlara -svona dæmigert NY fólk. Ein bandaríski tískuhönnuðurinn sagði okkur frá tískusýningu, sem henni ásamt fleirum þekktum hönnuðum var boðið að taka þátt í á Íslandi. Fyrir frumlegheita sakir átti að halda sýninguna útí buskanum, líklega í Landmannalaugum fyrir nokkrum árum. Þetta var alveg kostuleg saga af fullkomlega misheppnaðri uppákomu. Allt skipulag með íslenska þetta reddast laginu, nema hér klikkað bókstaflega allt og rjóminn af tískublaðamönnum og -ljósmyndurum Evrópu sem voru boðaðir sáust aldrei, aðeins nokkrir furðu lostnir bakpokaferðalangar horfðu á tískusýninguna þarna í öræfunum.
Þið öll sem hafið fylgst með New York ævintýrinu á blogginu í haust fáið bestu jólakveðjur og óskir um frábært nýtt ár.










Ferðalög | Breytt 29.12.2007 kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2007 | 05:56
Dórundur í New York


Skólinn er búinn bæði hér og í KHÍ. Mér gekk vel í námskeiðunum hér en er hrædd um að árangurinn í KHÍ verði ekki neitt sérstakur.
Nú eigum við Jóhann eftir eina og hálfa viku til að skoða listasöfn, kanna fleiri borgarhluta og auðvitað versla. Ég hef nefnilega ekki gefið mér almennilega tíma til að kanna búðirnar. Það verður spennandi að sjá hvernig það tekst, en allavega verður gengið frá jólagjafakaupunum hér.







Ferðalög | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.12.2007 | 16:34
Hverfin í Brooklyn

Einn daginn skoðuðum við BAM sem er listamiðstöð þar sem boðið er uppá alþjóðlega listviðburði. Við gegum síðan um Brooklyn Heights og enduðum á gangstíg meðfram Austuránni þar sem við nutum útsýnis yfir á Manhattan. Þaðan lá leiðin í hverfi sem er á milli Brooklyn brúar og Manhattan brúar sem heitir Dumbo. Þar eru búðir og skemmtilegir veitingastaðir, m.a. einn sem Gunna og Goggur borðuðu á sem heitir Bubbys þar sem einnig er frábært útsýni yfir Austurána.
Okkur langaði líka til að kynnast Park Slope sem er eitt af mörgum hverfum Brooklyn og þeim frábæru stöðum sem er að finna á 5th avenue. Við fengum tips um Al di La þar sem á að vera frábær heimilismatur, en þar var löng biðröð og við fengum ekki einusinni pláss í biðröðinni, en fórum í staðinn á frábæran Sushi stað. Leigubílstjórarnir neituð að keyra okkur til baka til Williamsburg, sögðust ekki rata. En við hittum loksins á ratvísan leigubílstjóra sem bjó í Brooklyn og við komumst heim.
Við höfum farið á nokkra staði í Williamsburg. Um daginn var Max ZT, Dulcimer spilari að spila með hljómsveit á Galapagos sem er tónleikastaður með sundlaug (ekki til að synda í). Við Gunna fórum með einni bekkjarsystur minni og skemmtum okkur konunglega. Flestir staðirnir í sömu götu eru með sundlaugar eða eitthvað vatnsþema.
Gunna og Goggur eiga einn dag eftir og ég fæ næstu sendingu af gestum í dag. Það er búið að vera frábært að hafa Gunnu, við höfum haft það virkilega huggulegt. (Nema að ég hef þurft að nördast svoldið).



Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Lilja Jóhannsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar