14.9.2007 | 04:43
East Village
Skólastarfið byjaði á fullu blússi strax á fyrsta degi, hef varla náð andanum síðan. Þetta ver einhvern meira en ég bjóst við. Ótrúlega mikill lærdómur, mikill lestur og verkefna skil, mörg í hverri viku. Það sem ég þurfti að ganga í gegnum var einhverskonar hugarfarsbreyting. Ég er í fullu námi, ekki í fríi. Ég er svo sem vön því að vera í námi, stunda fulla vinnu og reka heimili. En þetta er einhvernvegin mikið meira. Þó að þetta séu bara 12 einingar, 7 hér og 5 heima þá er þetta algjörlega full vinna. En hei, hér er ég í heimsborg og hef ekkert að hugsa um nema mig, Jóhann hugsar mest um sig sjálfur. Við förum út á kvöldin og um helgar skoðum við okkur um. Það er ekki hægt að kvarta yfir neinu.
Í kvöld skruppum við yfir götuna og inná rússneskt veitingarhús. Stuttu eftir að við vorum byrjuð að borða komu músikantar, gítarleikari og söngkona. Þau hófu flutning á alveg ótrúlega ljúfri tónlist. Þetta var einhvernvegin alveg frábært. Þessi staður er lítill, í dimmum kjallara eins og flestir staðirnir hér í hverfinu. Það er lika hægt að sitja úti. Söngkonan talaði við okkur gestina og sagði sögur sem tengdust flestum lögunum sem þau fluttu. Á staðnum voru hjón að halda uppá hjúskaparafmæli og söngkonan spann á staðnum texta til þeirra og gítarleikarinn spilaði undir. Þetta var svona algjört grenjumóment hjá mér. Söngkonan tók eftir því og imponeraðist.

Ferðalög | Breytt s.d. kl. 05:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 14. september 2007
Um bloggið
Lilja Jóhannsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar