24.9.2007 | 14:20
Troy - Cape Cod
Þessa helgi var lagt í langferð á bílaleigubíl. Við reyndum að hrista upp í minninu og sjá hvort við myndum eitthvað eftir háskólabænum Troy þar sem við bjuggum í fyrir 28 árum. Þetta er um 3 tíma akstur frá Manhattan. Við reyndumst vera búin að gleyma flestu. Þegar við leituðum uppi "students housing" í rákumst við á götuskilti með kunnuglegu nafni, Nott dr., en húsið sem við bjuggum í var hvergi sjáanlegt, það eina sem var eftir af götunni okkar var skakt skiltið. Enda var húsið afgamall timburhjallur. Ýmislegt rifjaðist þó upp þegar við gengum um campus, t.d. myndarleg kirkja sem hafði verið breytt í tölvuver eftir að hún komst í eigu skólans. Þetta er fallegur campus og Jóhanni líkaði dvölin þarna vel.
Þetta varð ekki langt stopp í Troy því við vorum búin að melda okkur í humarveislu á Cape Cod tangann, 5 klst akstur. Cape Code ersunnan við Boston. Fjölskylda Michelle (frænka Lilju) tók hlýlega á móti okkur og nutum við gestrisni á fallegu heimili þeirra. Um sunnadagsmorguninn fórum við í morgunmat í fína bakaríið þeirra við Cottage Street. Þar var margt sem freistaði. Það var stanslaus ös, eins og er víst allt sumarið og á hátíðum, enda er þetta mest sumarhúsabyggð á Cape Cod, einskonar Grímsnes fyrir New York og Boston. Eftir morgunverð fórum við í bíltúr með Michelle og krökkunum á enda Cape Cod tangans til bæjar sem heitir Prowincetown eða P-town, sem er m.a. þekktur sem "gay-resort". Þetta er mjög fallegur bær, víst brjáluð traffík á sumrin, en nú var alveg mátulegt. Þarna er ein þröng aðalgata með litlum húsum sem í eru veitingarstaðir, verslanir eða gallerí.
Frábær helgi sem var víst sú síðasta á þessu sumri, nú fer víst að kólna segja þeir.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 24. september 2007
Um bloggið
Lilja Jóhannsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar