Færsluflokkur: Ferðalög
21.12.2007 | 00:52
Síðasta bloggið
Skólinn var búinn í fyrstu vikunni í desember og gengu bæði námskeiðin mjög vel. Ég held jafnvel að ég hafi líka náð námskeiðinu sem ég tók í KHÍ í fjarnámi. Sem sagt 12 einingar í höfn og náin kynni við stórkostlega heimsborg eru afraksturinn af fyrri hluta námsleyfisins.
Lokaspretturinn í New York var tekinn á rólegu nótunum. Til stóð að sjá jafnvel einn söngleik í viðbót eða eina danssýningu. En tíminn flaug frá okkur og Gospell brunch í Harlem og kvöldverður á Il Buco verða einnig að bíða þar til við komum næst.
En við náðum að kaupa slatta af jólagjöfum og einhverjar spjarir utan á okkur. Jólainnkaupin hrukku fyrst í almennilegan gír þegar Lilja áttaði sig á að það var miklu minni troðningur og engar biðraðir í dýru búðunum á fimmtu breiðgötu. Við fórum á nokkur veitingahús sem við vorum búin að fá tips um s.s. The Spotted Pig sem er veitingarstaður í vestur þorpinu þar sem himneskir hamborgarar eru í boði og verðið eftir því, Peter Luger steikhús í Williamsburg, þar sem steikurnar eru víst þær bestu í New York, fengið bestu einkunn s.l. 23 ár. Nú síðast var farið á Jules Jazz veitingarhús í austur þorpinu þar sem er lifandi tónlist öll kvöld. Þar spilaði Lipbone Redding á varinar á sér. Hann tjáði okkur áhuga sinn á Íslandsferð og gerðumst við umboðsmenn hans á staðnum. Einnig könnuðum við Williamsburg aðeins nánar og kíktum á stað við Grand street sem heitir Rose. Við vorum reyndar einu gestirnir þar þegar við litum inn undir miðnætti á mánudagskvöld, og 5 manna blues grúppa tók okkur fagnandi og spilaði fyrir okkur skötuhjúin af krafti meðan við ýmist löptum rauðvín eða dönsuðum virkilega rómantískur endir á barrannsóknum okkar í NY. Við vorum líka menningarleg og skoðuðum splunkunýtt safn á Bowery, The New Museum sem var áhugavert eins og nýlist gerist hvað best. Villi, Siffufrændi sem bjargaði okkur í húsnæðismálunum hér í haust bauð okkur í jólaboð þar sem við fengum frábærar veitingar sem hefðu sómt sér vel í íslenskri fermingarveislu og við hittum skemmtilegt fólk, mest úr tískubransanum en einnig verðbréfamiðlara -svona dæmigert NY fólk. Ein bandaríski tískuhönnuðurinn sagði okkur frá tískusýningu, sem henni ásamt fleirum þekktum hönnuðum var boðið að taka þátt í á Íslandi. Fyrir frumlegheita sakir átti að halda sýninguna útí buskanum, líklega í Landmannalaugum fyrir nokkrum árum. Þetta var alveg kostuleg saga af fullkomlega misheppnaðri uppákomu. Allt skipulag með íslenska þetta reddast laginu, nema hér klikkað bókstaflega allt og rjóminn af tískublaðamönnum og -ljósmyndurum Evrópu sem voru boðaðir sáust aldrei, aðeins nokkrir furðu lostnir bakpokaferðalangar horfðu á tískusýninguna þarna í öræfunum.
Þið öll sem hafið fylgst með New York ævintýrinu á blogginu í haust fáið bestu jólakveðjur og óskir um frábært nýtt ár.
Ferðalög | Breytt 29.12.2007 kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2007 | 05:56
Dórundur í New York
Skólinn er búinn bæði hér og í KHÍ. Mér gekk vel í námskeiðunum hér en er hrædd um að árangurinn í KHÍ verði ekki neitt sérstakur.
Nú eigum við Jóhann eftir eina og hálfa viku til að skoða listasöfn, kanna fleiri borgarhluta og auðvitað versla. Ég hef nefnilega ekki gefið mér almennilega tíma til að kanna búðirnar. Það verður spennandi að sjá hvernig það tekst, en allavega verður gengið frá jólagjafakaupunum hér.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.12.2007 | 16:34
Hverfin í Brooklyn
Einn daginn skoðuðum við BAM sem er listamiðstöð þar sem boðið er uppá alþjóðlega listviðburði. Við gegum síðan um Brooklyn Heights og enduðum á gangstíg meðfram Austuránni þar sem við nutum útsýnis yfir á Manhattan. Þaðan lá leiðin í hverfi sem er á milli Brooklyn brúar og Manhattan brúar sem heitir Dumbo. Þar eru búðir og skemmtilegir veitingastaðir, m.a. einn sem Gunna og Goggur borðuðu á sem heitir Bubbys þar sem einnig er frábært útsýni yfir Austurána.
Okkur langaði líka til að kynnast Park Slope sem er eitt af mörgum hverfum Brooklyn og þeim frábæru stöðum sem er að finna á 5th avenue. Við fengum tips um Al di La þar sem á að vera frábær heimilismatur, en þar var löng biðröð og við fengum ekki einusinni pláss í biðröðinni, en fórum í staðinn á frábæran Sushi stað. Leigubílstjórarnir neituð að keyra okkur til baka til Williamsburg, sögðust ekki rata. En við hittum loksins á ratvísan leigubílstjóra sem bjó í Brooklyn og við komumst heim.
Við höfum farið á nokkra staði í Williamsburg. Um daginn var Max ZT, Dulcimer spilari að spila með hljómsveit á Galapagos sem er tónleikastaður með sundlaug (ekki til að synda í). Við Gunna fórum með einni bekkjarsystur minni og skemmtum okkur konunglega. Flestir staðirnir í sömu götu eru með sundlaugar eða eitthvað vatnsþema.
Gunna og Goggur eiga einn dag eftir og ég fæ næstu sendingu af gestum í dag. Það er búið að vera frábært að hafa Gunnu, við höfum haft það virkilega huggulegt. (Nema að ég hef þurft að nördast svoldið).
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2007 | 23:32
Myndir
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.11.2007 | 18:50
Systur
Frank Lloyd Wright, ein flottasta bygging í heimi. Sýningarnar þar núna voru svona la la, en einn gesta safsins um leið og við var leikarinn Kevin Klein. Hann var með dóttur sinni þótti okkur mikill fengur í að sjá hann berum augum. Hann bara lallaði þarna um, hallaði höfðinu aftur og pírði augun til að gaumgæfa listaverkin og við vorum svona þremur skrefum á undan og reyndum eins mest og við máttum að glápa ekki meira á hann en listaverkin. Hann er hér í bæ (kannski á hann heima hérna ég veit það ekki) en allavega er hann að leika í Cyrano de Bergerac á Broadway. Því miður er sviðsmannaverkfall, þannig að við getum ekki farið að sjá hann.
Nú, næst lá leiðin niður í bæ, Down town. Við gengum flottar götur, Bleeker Street og 8th Aveune í
áttina að Meatpacking district sem er mest hipp kúl svæðið núna. Fengum okkur kokteil á
einum smörtum stað og rákum nefið inn í nokkra aðra rosalega. Á Bleeker Street fórum við inní gourmet búð og keyptum Siggi's skyr. Næst var plan Lilju að fara á Poetry slam, það var í Austurþorpinu og Lilja
er ansi hættuleg með það að draga mann gangandi þingmannaleiðir þrjár- en það var þess virði því að á Nuyorican Poets Cafe var troðið út úr dyrum og ljóðakeppnin að byrja. Þarna var mikill hiti í fólki, hrópað
og kallað og ljóðum gefin einkun. Eitt skáldið var albest og hann heitir Jamaal St. John. Við stoppuðum þarna í um 1 og 1/2 tíma en ég var orðin ansi sárfætt eftir þingmannaleiðirnar og svo voru engin sæti
á slamminu. Við héldum þá heim á leið og þegar við komum hingað í götuna til Lilju stoppuðum við á einum pubb á Bedford Avenue. Servitrísan var geðþekk og tók að spjalla við okkur og þegar kom í ljós að við værum frá Íslandi sagði hún að uppáhalds dansari sinn væri íslensk, hún mundi ekki hvað hún hét en tólistarmaðurinn sem dansarinn vinnur með væri í miklu uppáhaldi hjá sér líka og hann héti Johann Johannson. Þið getið ímyndað þér hissuna og gólin þegar hún heyrði að við værum systur hans. Við höfðum út úr þessu frían bjór á barnum út á frægð Jonna. Hún hafði hitt hann í Vín og spallað við hann fyrir nokkrum árum síðan, er dansari sjálf og langar alveg ofsalega að vinna með honum.
Þetta var nú meiri dagurinn!
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2007 | 05:29
Mæðgur 2
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 05:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2007 | 14:35
Mæðgur
Ein kennslustund í öðru námskeiðinu sem ég tek var haldin í The Metropolitan Museum Of Art. Við fengum fyrirlestur um það sem safnið hefur uppá að bjóða fyrir kennara og skólaheimsóknir. Okkar hlutverk var að útbúa kennslustund byggða á verkum úr safninu. Þegar safnskoðun var lokið héldum við upp á efri hæðir þar sem við nutum tónlistar og drukkum vín.
Nú eru aðrar mæðgur komnar í heimsókn og fjörið heldur áfram.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2007 | 04:38
Diwali og fleira
Daginn eftir skoðuðum við American museum of natural history og um kvöldið gerðumst við Kristrún þjóðlegar og fórum á Múm tónleika hér í New York. Þeir voru haldnir í húsnæði nálægt Central Park. Húsfylli var á tónleikunum og skemmtum við okkur konunglega. Þó að þetta sé ekki tónlistin sem ég hlusta á svona dags daglega fannst mér þetta skemmtilegt og alltaf áhugavert að fylgjast með tónlistarútrásinni.
Í dag gengum við yfir Brooklyn brú, borðuðum ótrúlega gott French toast á Frankie 17 í Lower east Side og skoðuðum Tenament safnið.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2007 | 02:26
Kennarablogg
Um 600 manns sóttu ráðstefnuna og var fjöldi erinda um 120. Eins og svona ráðstefnur heilla mig þá hrellir það mig jafn mikið að þurfa að velja milli erinda sem ég ætla að hlusta á. Ég lenti tvisvar í því að hafa valið vel, en ákvað að fara út í miðju erindi til að ná öðru erindi (þetta er græðgi!!), sem reyndist síðan vera lélegt í bæði skiptin.
En í heildina held ég að ég sé ánægð með ráðstenfuna. Samt missti ég af báðum aðal fyrirlesurunum. Annar þeirra var Dave Sperling sem heldur úti Daves ESL Café (ESL er English as a Second Language), sem er nokkuð góður vefur sem ég hef oft notað. Reynsluleysi mitt af Amerískum ráðstefnum gerði ekki ráð fyrir því að borga sérstaklega til að heyra í aðalfyrirlesara, þetta fór fram hjá mér. En ég tók þátt í hádegisverði þar sem nokkrir kennarar voru heiðraðir. Þar var m.a. Andrea nokkur Honingsfeldt sem var á Íslandi sem Fulbright styrkþegi 2002. Hún hélt marga fyrirlestra sem ég man eftir og ég veit að hún aðstoðaði mikið við mótun nýbúakennslunnar í Reykjavík. Á ráðsefnunni fékk Andrea verðlaun fyrir að vera Outstanding teacher sem felst í framúrskarandi kennslu, þjónustu við nemendur og fyrir að láta að sér kveða bæði faglega og samfélagslega.
Á ráðstefnunni bar margt á góma sem ég hef kynnst á kúrsunum sem ég tek hér, s.s. tæknin við upplestur sem einkennist af; read aloud, shared reading (ég verð með kynningu á sared reading kennslustund á þriðjudaginn), think aloud, text-to-self, text-to-world, og text-to-text. Einnig var fjallað um sjálfstæðan lestur, að dýpka skilning á textanum með því að gafa sig ofan í hann og merkja inná spássíur og undirstrika eftir kúnstarinnar reglum. Og lestur með áherslu þar sem notast er við readers theater sem líkist útvarpsleikriti þar sem hlutverkum er skipt niður á hópa, þeir lesa texta upphátt í kór. Nemendum er kennt að nýta sér greinarmerki og samhengi textans til að láta lesturinn hljóma áhugaverðan.
Hvað tölvur varðar þá var kynning á podkastvefum nokkuð áhugaverð, einnig hvernig nemendur unnu heimildarmynd um þá pólitísku ákvörðun að skera niður framlög til enskukennslu fyrir útlendinga. Ég heyrði af vef með stafrænu kvikmyndasafni frá Discovery channel sem skólarnir kaupa aðgang að sem heitir United streaming videos og einnig heyrði ég af myndavél sem heitir Document camera sem er tengd við skjávarpa og varpar mynd af því sem er sett undir myndavélina uppá vegg.
Ég hef farið í tvær skólaheimsóknir hér og fylgst með ESL kennslu. Margir aðstoðarmenn voru í annarri kennslustofunni eða 4 í 20 barna bekk með nokkrum sérkennslunemendum. Ég á eftir að spyrjast nánar fyrir um þetta. En mér skilst að yfirleitt séu aðstoðarkennarar inni í tímum. Ég stefni á fleiri heimsóknir. Ég komst að því á ráðstefnunni að kennarar í New York eru vel launaðir. Þeir sem eru með master hafa 65.000 USD á ári og þeir tala ákaflega vel um stéttarfélagið sitt sem m.a. styður vel við endurmenntun þeirra. Þeir geta sótt námskeið víða og fengið þau metin til eininga sem þeir safna upp í master, sem veitir launahækkun. Öll námskeiðin eru seinnipart dags. Námskeiðin sem ég sæki byrja kl 5 og 7.
Mér finnst áberandi hvernig markviss mælitæki eru notuð hér á frammistöðu nemenda. Kennarar greina hvar nemandi er staddur í tungumálanámi; beginner, early intermediate, intermediate, advanced. Lesturinn er skilgreindur í þrepum 1., 2., 3., og 4. Í New York fylki er notast við svokallað DRA (development reading assessment) lestrarpróf en þar eru þau hætt að mæla hraða. Þau mæla færni og lesskilning, hvort nemendur geta endursagt og svarað lesskilnings spurningum. Á ráðstefnunni var t.d. talað um ellefu ára nemanda sem var early intermediate ESL, með lestrargetu 3. bekkjar. Ég man ekki hvernig lesturinn er mældur heima, en fannst þetta áhugavert.
Hér eru kennarar mjög óánægðir með lög sem Bush setti árið 2001 sem kallast NCLB (No child left behind) sem eiga að bæta frammistöðu grunnskólabarna. Styrkir til skólanna byggja á niðurstöðum þeirra prófa sem lögin kveða á um að lögð séu fyrir alla nemendur. Kennarar eru sérstaklega óánægði með það að ESL nemedur séu látnir taka þessi próf á jafnt við aðra.
Ég vona að þeir sem eru ekki kennarar en hafa lent í því að lesa bloggið deyi ekki úr leiðindum, en það sem ég er orðin svo gleymin þá finnst mér gott að hafa þetta niðurskrifað einhversstaðar, for future references.
Ferðalög | Breytt 5.11.2007 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2007 | 01:42
Í Brooklyn
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Lilja Jóhannsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar